Hestar til sölu
Blúnda frá Skíðbakka, a beutiful chestnut with light mane and tale and a blaze is for sale. She is pregnant after the great stallion Aron


 


 

Leita

_

Hestvit ehf er fyrirtæki sem Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir stofnuðu um rekstur hestaviðskipta sinna.

Fyrirtækið kaupir hesta og selur, annast hestaútflutning sem og kennslu og hvers konar ráðgjöf, innanlands sem utan.  Það kemur einfaldlega að öllu sem lýtur að íslenska hestinum!

Á þessum síðum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið og þau sem á bak við það standa. 

NEW!  From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English.   The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings.  Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested!   Have fun looking!

Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....


21. júní 2010 | 18:08

Allt á fullu á Árbakka

Nú birtir yfir Árbakkaliðinu; hestarnir eru að komast í þjálfun aftur og veikindin í rénum.  Eftir nokkurra vikna girðingarvinnu og fleiri tengd verkefni er byrjað að þjálfa hestana aftur og nokkur hross mæta í kynbótadóm í næstu viku.

Já, hér er búið að skipta upp 90 hekara hólfi í nokkur smærri, fjölga hentugum viðrunarhólfum hér heima við bæ, verið er að vinna upp 20  hektara nýtt tún til heyskapar og verið er að klæða að innan minni skemmuna okkar sem við nýtum sem spónageymslu, hringteymingaraðstöðu og fyljunaraðstöðu á sumrin þegar við erum að nota  hestana á húsi.  Allt verkefni sem frábært er að klára og gaman að sjá nýja og glæsilega hluti.  Enn eru eftir nokkrir trjáflutningar og er áætlað að reyna að komast í það seinna í þessari viku.  Gaman, gaman allt saman!

En fyrir mestu er að nú eru hestarnir að komast í lag.  Þjálfun hefur farið rólega af stað, að öllu er farið með gát til að reyna að komast hjá því að hrossum slái niður.  Þrír hestar hóstuðu aftur einu sinni hver og fengu þeir viðbótarfrí en eru einnig að komast í gang aftur.  Ef svo heldur áfram verður allt komið á fullan skrið í næstu viku.  Við höfum ákveðið að sýna ekki stóðhestana Straum frá Breiðholti og Héðinn frá Feti í kynbótadómi þetta árið þar sem þeir hafa verið í þjálfunarfríi í 8 vikur vegna hóstans.  Þeir eru löngu orðnir frískir en eru önnum kafnir við að sinna hryssum.  Og af þvi að ekkert verður Landsmótið finnst okkur ekki liggja lífið á með þá kumpána.  Nokkrar hryssur verða sýndar, bæði í eigu búsins sem og aðkomuhryssur.  Sumar núna um mánaðarmótin, aðrar eftir mánuð.

Á myndunum með, eru Jón og Hinni að girða, Hinni, einu sinni sem oftar truflaður af símanum.  Að neðan er Jón að  hvíla sig, Hinni að setja bensín á sláttutraktorinn og Hulda að koma úr reiðtúr af Kjuða sínum.

 

 

Bensín sett á sláttutraktorinn, Mimi og Hinni

Stund á milli stríða, Jón tyllir sér niður

Hulda kemur úr reiðtúr á Kjuða sínum



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella- sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is