NEW! From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English. The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings. Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested! Have fun looking!
Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....
mörg ár er ég búin að bíða eftir eihver hryssan okkar kasti leistóttu merfolaldi! Og loksins núna er hún Ljónslöpp loksins komin aftur í mínar hendur. .
Þaðy er húsfrúin á Árbakka, Hulda sem segir þessa sögu svo þess vegna er hún skrifuð í fyrstu persónu.
Fyrir margt löngu, þegar ég byrjaði í hestamennsku átti ég engan hest. Og fjölskyldan mín átti ekki hross og skildi raunar ekkert hvaðan þessi hestaáhugi minn væri kominn. En ég eignaðist frábæra vini, þá bræður Jón og Kristbjörn Þórarinsson í Gusti. Jón af höfðingsskap sínum lánaði mér til reiðar hryssu nokkra, Ljónslöpp frá Kolkuósi, jarpstjörnótta, leistótta hryssu sem ég mátti nota að vild allan veturinn. Henni reið ég í heilt ár þangað til ég náði að kaupa mér minn fyrsta hest fyrir fermingarpeningana mína, Skúf frá Skúfsstöðum. Eftir að ég, svo mörgum árum síðar, hóf að rækta hross hef ég alltaf verið að bíða eftir því að fá í heiminn leistótta hryssu til að geta notað nafnið. Og nú er hún komin!
Undan Hnokka frá Fellskoti og Rebekku frá Borgarholti, fyrstu verðlauna alhliða hryssu. Rauðblesótt með leista á báðum framfótum. Ég sagði í hálfkæringi við kynbótadómara sem ég þekki vel að sennilega verðum við dæmdar úr leik í kynbótadómi í framtíðinni því úr fjarlægð gæti litið svo út að daman væri með hvítar hlífar á báðum framfótum :)
En sperrt er hún, fínleg og með þennan fallega háls sem Hnokki barasta raðar á folöldin sín. Leistarnir sjást ekki nógu vel á þessum myndum en þeir eru sannarlega þarna! Ég hlakka mikið til að eiga við þessa dömu þegar hún verður eldri!
Ljónslöpp 10 daga gömul