Árið 1994 var heldur betur viðburðaríkt. Haustið 1993 keyptum við hinn landsþekkta gæðing Gými frá Vindheimum undan Sval frá Glæsibæ og Skjónu frá Vindheimum. Gýmir hafði 1990 verið í öðru sæti á eftir Muna á Landsmóti 1990 og sigraði A flokk gæðinga á Fjórðungsmóti 1991, þá einungis 7 vetra gamall. Gýmir var sigurkandídat fyrir LM1994 og þangað var stefnan tekin.
Gýmir sigraði svo úrtökuna í Fáki með glæsibrag og kom svo á Landsmót og átti glæsilega forkeppni og stóð langefstur. Lengra þarf ekki að rekja þá sögu, það muna flestir eftir því hörmulega slysi þegar Gýmir greip á sig og fór úr kjúkuliði. Sams konar slys hafði ekki átt sér stað á Íslandi áður, svo vitað sé en gerist oft á brokk og stökkbrautum erlendis. Þetta var sorgarsaga sem ekki verður rifjuð frekar upp hér.
Gýmir var stórbrotinn gæðingur á allan hátt. Ennþá er miðað við hann þegar talað er um bestu A flokks hesta allra tíma. Hann var mikið viljugur, vildi ekkert kjass eða knús en þótti gaman að vinna. Hann er heygður í brekkunni vestan megin við félagsheimili Fáks, með leyfi þáverandi stjórnar Fáks.
En það gerðist margt fleira þetta ár. Óður komst í okkar eigu og fékk fyrir hæfileika 8.70 5 vetra gamall sem þá var hæsta hæfileikaeinkunn sem 5 vetra stóðhestur hafði fengið ásamt því að Kjarval frá Sauðárkróki hafði líka fengið sömu einkunn. Óður var svo sýndur á Landsmótinu og vakti þar mikla athygli. Hann kemur meira við sögu seinna. Óður er eins og jú margir vita undan Stíg frá Kjartansstöðum og Ósk Ófeigsdóttur frá Brún.
Hulda komst í fyrsta skipti inn á Landsmót með því að vinna sér sæti á gæðingsklárhryssunni Hrafntinnu frá Núpi í tölti. Hrafntinna var svo seld Augusti Beyer og endaði í dótakassanum hans. Hún hefur verið að skila flottum klárhrossum, m.a. Óðssyni sem heitir Hróður frá Reykjavík og er í Danmörku, dæmdur með 9 fyrir tölt og fyrstu verðlaun.
Stefnir frá Tunguhálsi byrjaði á þessu ári að gera sig gildandi, komst í B úrslit á Íslandsmóti í fimmgangi, sigraði þau og vann sig upp í fjórða sæti í fimmgangi.
Og á Norðurlandamóti í Finnlandi í ágúst sigruðu Hinrik og Eitill frá Akureyri gæðingaskeið, 250m skeið og urðu samanlagðir sigurvegarar auk þess sem þeir urðu í fimmts sæti í fimmgangi. Semsagt þrefaldur Norðurlandameistari. Að auki varð hestur í okkar eigu Norðurlandameistari í fjórgangi og tölti, Fleygur frá Hvassafelli með Svein Ragnarsson sem knapa.