Áfram var haldið. Árið 1995 mætti Óður frá Brún í fyrsta skipti í gæðingakeppni og varð annar á Hvítasunnumóti Fáks, á eftir Huginn frá Kjartansstöðum.
Hulda fór með Stefni í úrtöku fyrir HM og gekk ágætlega en tókst ekki að tryggja sér sæti í liðinu. Þá var haldið á Íslandsmót og eftir harða baráttu við Atla Guðmundsson á Hnokka frá Húsanesi, varð hún í öðru sæti með minnsta mögulega mun, 0,01. Á mótinu var slaktaumatölt sýningargrein og unnu þau það nokkuð örugglega.
Stefnir hafði verið seldur um vorið þýskum dýralækni með afhendingu eftir úrtöku. Þegar nú er komið, ákváðum við að bjóða liðsstjórum Stefni fram sem varahest því hann var jú á leið út hvort sem var. Það varð úr og Stefnir flaug út með landsliðshestunum og var fluttur með þeim alla leið til Sviss. Þegar á leið kom svo í ljós að Hnokki gekk ekki heill til skógar svo á mánudegi rétt fyrir síðasta skráningardag fengum við að vita að við fengjum að vera með á mótinu. Svo það var hringt heim til Íslands og ættingjarnir beðnir um að koma með græjurnar, hvítu buxurnar og þess háttar því við höfðum ekki gert okkur neinar vonir um að komast í liðið. Þegar upp var staðið urðum við í 4. sæti í slaktaumatölti og öðru sæti í fimmgangi. ´
Hinrik átti titil að verja frá því í Hollandi og mætti með Eitil. Eitill átti í einhverjum vandræðum á harðri brautinni og náði sér ekki alveg á strik en varð samt sem áður í þriðja sæti.