Árið 1996 keyptum við bræðurna Höld og Hljóm frá Brún, eldri og yngri bræður Óðs.
Höld, sem gefið hefur mikið af góðum hrossum hér á landi, seldum vil fljótlega til Bandaríkjanna. Hljóm héldum við eftir. Hann er þetta árið aðeins 5 vetra gamall en af rælni ákváðum við að skrá hann á Hvítasunnumót Fáks. Þar keppti Hinrik á Óði frá Brún og þar voru fleiri stórmenni eins og Svartur frá Unalæk og fleiri. Leikar fóru þannig að Óður sigraði með glæsibrag, annar varð Svartur og í þriðja sæti hinn fimm vetra gamli Hljómur.
Óður var sýndur í kynbótadómi og fékk hvorki meira né minna en 8.90 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið og 9,7 fyrir skeið. Eftir góða frammistöðu á gæðingavellinum og vegna þess að hann er ekki ýkja hár fyrir byggingu mátum við möguleika hans meiri í gæðingakeppninni heldur en á kynbótabrautinni og því var stefnt með hann þangað.
Þar sem Hljómur var svo ungur og búið var að ganga frá leigu á honum í hryssur fannst okkur ekki tímabært að mæta með hann á fjórðungsmót en Óður mætti galvaskur. Hann var á meðan á mótinu stóð hafður í hólfi með feikna mörgum hryssum á Stóra-Hofi og virtist í fyrstu sem það hentaði honum vel. Hann var langefstur eftir hina sérstöku forkeppni, hlaut 9,08 í einkunn sem er feikna há einkunn. Í millikeppninni örlaði á þreytu í klárnum en endaði samt sem áður efstur. Í úrslitunum fannst honum nóg komið og ákvað hann þá að nú væri nóg komið og stóð sem fastast hér og þar á vellinum. Hann var því dæmdur úr keppni sökum kergju, sem reyndir stóðhestaeigendur og ræktendur tjáðu okkur að væri ekki óalgeng viðbrögð í stóðhestum á þessum árstíma. Á sama tíma vorum við stofna hlutafélag um hestinn sem á hestinn enn þann dag í dag, Óð sf. Og eins og kunnugt er hlaut hann heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu 2004, 15 vetra gamall.