Hér eru fréttir skrifaðar árið 2005 og fullt af myndum. Góða skemmtun!
Á síðunni er að finna upplýsingar um starfsemi þeirra sem felst í öllu mögulegu varðandi íslenska hestinn. Kaupum, sölu, kennslu, keppni, útflutningi, sölu hnakka og svo framvegis. Að auki er hér að finna ýmsar upplýsingar um þau sjálf, stutt æviágrip og feril í máli og myndum.
Hulda hefur unnið að gerð síðunnar á haustmánuðum, aflað mynda og annarra heimilda. Enn er síðan ekki alveg fullkláruð, t.d. er unnið að þýðingu hennar á enska tungu og mun því starfi verða sinnt á komandi vikum. Það er kerfið ECweb sem heldur utan um síðuna.
Hér á fréttasíðunni er ætlunin að birta fréttir og "ekkifréttir" af þeim og starfsemi þeirra og er vonandi að þú, lesandi góður, hafir kannski eitthvert gagn, en allavega gaman af því að glugga í síðuna.
Góða skemmtun!