Hér eru fréttir skrifaðar árið 2005 og fullt af myndum. Góða skemmtun!
Okkur langar að þakka öllum þeim sem kíkt hafa inn á nýju heimasíðuna okkar undanfarna daga, kærlega fyrir jákvæð viðbrögð. Reyndar hafa viðbrögðin verið langt fram úr öllum vonum, greinilegt er að íslenskir hestamenn eru netvæddir í meira lagi. Greinilegt er á heimsóknafjölda að söluhestasíðan vekur forvitni, hnakkana eru margir að skoða og svo er greinilegt að margir eru að gramsa í "söguhlutanum" þar sem ferill okkar í máli og myndum er tíundaður. Tölvupósti hefur rignt yfir mig, en einmitt þannig vildi ég hafa þetta. Svo hef ég líka fengið vinsamlegar ábendingar um sitthvað sem betur hefur mátt fara og hef ég leiðrétt það þar sem við á.
Ég leyfi mér hér að birta vísukorn sem "Eldur" setti inn á slúðurrás 847 því mér fannst hún svo skemmtileg;
FER UM VERÖLD VÍÐA
Á VEFNUM EINS OG BLYS.
VEL HÖNNUÐ HEIMASÍÐA
HESTVIT PUNKTUR IS.
Takk kærlega öll sömul!
Ég, þ.e. Hulda, er aðalritstjóri síðunnar og er uppfull af hugmyndum, og vonandi endist mér áhugi og elja til að uppfæra síðuna vel og oft, svo þið lesendur góðir getið haft gaman af því að lesa þetta og skoða myndir. Á næstu dögum koma inn fleiri söluhestar auk þess sem ég ætla að skrifa reglulega fréttir af hestunum okkar, góðum gestum sem við eigum von á í vetur og ýmsu fleira skemmtilegu. Svo endilega kíkiði sem oftast, vonandi verður alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt að skoða.
Bestu kveðjur
Hulda