Hér eru fréttir skrifaðar árið 2005 og fullt af myndum. Góða skemmtun!
Gústi reið á vaðið og gerði sér lítið fyrir og sigraði pollaflokkinn á Óðni sínum frá Gufunesi. Þeir töltu glæsilega um Brekkuvöllinn, Gústi og Óðinn ásamt öllum hinum pollunum og það var stolt afmælisbarn sem tók við verðlaununum sínum í kulda og trekki. Í öðru sæti var svo hin efnilega 5 ára Rúna Tómasdóttir á honum Glugga sínum frá Grenstanga.
Þá var komið að Eddu. Barnaflokkurinn er feikna sterkur í Fáki og þrátt fyrir að nokkur góð frá í fyrra séu nú farin upp í unglingaflokk var hart barist. Edda Hrund reið höfðingjanum Snæfaxa frá Selfossi en þau gerðu einmitt góða ferð á LM 2004 á Hellu í fyrra. Hún sigraði Barnaflokkinn núna. Í öðru sæti varð svo Ragnar Tómasson jr, stóri bróðir Rúnu sem keppti við Gústa í pollaflokknum, á Straumi frá Sauðárkróki.
Svo var komið að mömmunni en hún reið í atvinnumannaflokknum og sigraði hann á Glæsi frá Ytri-Hofdölum. Þar var það Alexander Hrafnkelsson á Gutta Pet sem varð í öðru sæti.
Að auki stóðu ýmsir nemendur Huldu sig vel í keppninni og nældu sér í medalíur svo dagurinn var heldur betur fínn, þrátt fyrir skafrenning og kulda.
Þar á eftir lá leiðin heim þar sem bekkjarfélagar Gústa komu í afmæli og gæddu sér á heimagerðri pizzu og fótboltaköku. "Lukkudagur" sagði Gústi stoltur.
Hér á síðunni eru myndir af öllum knöpunum á viðkomandi hestum teknar við ýmis tækifæri á síðasta ári.
Nánari úrslit má finna á www.fakur.is.