Hér eru fréttir skrifaðar árið 2005 og fullt af myndum.  Góða skemmtun!

24. febrúar 2005 | 22:10
| Fréttir 2005

Svellkaldar konur - Egilshöll

Laugardagskvöldið 19. febrúar fór fram keppnin "Svellkaldar konur" í Egilshöll.  Þar var um að ræða tölt í skautahöllinni þar og einungis konur fengu að vera með. 

Hulda brá að sjálfsögðu undir sig betri fætinum og skellti sér í slaginn.  Gat ekki gert upp við sig hvort hún ætti að fara með Glæsi frá Ytir-Hofdölum eða nýjan hest, Hrynjandasoninn Nasa frá Akurgerði.  Og af því að það var hægt þá skráði hún þá báða og ákvað að láta dómarana um að velja hvor hentaði nú betur í slaginn.  Nú, það er skemmst frá því að segja að Hulda kom þeim báðum í úrslit og var mikið stolt af því.  En þá tók við erfið ákvörðun, en auðvitað skemmtileg, að velja hvorn hestinn hún færi með í úrslit.  Glæsir var eftir forkeppni í þriðja sæti en Nasi í því fimmta.  Hún skellt sér á Glæsi og sá ekki eftir því, reið sig upp í annað sætið og vermdi þeim Eddu Rún og Hregg hressilega undir uggum. 

Svo tók Samúel Örn við Huldu og Eddu Rún skemmtilegt viðtal sem var sýnt í Helgarsporti á sunnudagskvöldinu og þá fékk Hulda tækifæri til að sjá Glæsi "live" og var sátt við það sem hún sá.

Og ekki gerði það ferðina síður skemmtilega að ýmsir nemendur Huldu stóðu sig verulega vel, Anna Sigurðardóttir og Hrafn frá Ríp urðu í þriðja sæti í þriðja flokki, Rakel K Sigurhansdóttir og Strengur frá Hrafnkelsstöðum urðu í fimmta sæti í sama flokki og rétt utan úrslita voru Sóley Halla Möller með hann Stúf sinn og Bára Brynjólfsdóttir og Narfi frá Syðra-Skörðugili.  Allar voru þær á ís í fyrsta skipti á ævinni og höfuð virkilega gaman af.  Að auki var Susi, starfsmaðurinn okkar, í úrslitum í öðrum flokki á Snæfaxa okkar frá Selfossi.

Spennandi verður að sjá framhaldið en byrjun vetrar lofar góðu á keppnissviðinu.

Hér á myndinni eru Glæsir og Hulda á Suðurlandsmótinu í hestaíþróttum þar sem þau voru í úrslitum í fjórgangi og tölti.

 

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is