Nú er kominn tíma til að taka til hendinni hérna á síðunni á nýjan leik. Og fyrsti leikur er að óska öllum vinum og lesendum nær og fjær gleðilegs árs!
Í viðtali við hluta fjölskyldunnar í Eiðfaxa í desember var gert heyrinkunnugt að fjölskyldan myndi hittast á Árbakka á annan í jólum. Engu var þar logið og eru hér nokkrar skemmtilegar myndir af þessari dæmalaust skemmtilegu uppákomu.
Fyrstu helgina í mars ár hvert er haldin mikil hátíð; kvennakvöld Fáks. Undirrituð hefur varla misst úr kvöld síðustu hmmm, hvað mörg árin og alltaf skemmt sér konunglega! Þetta árið var engin undantekning!