Rúmlega 40 hross á járnum, þar af um það bil 15 tryppi á fjórða og fimmta vetur fædd hér á Árbakka auk keppnishrossa og annarra söluhrossa. Okkur til aðstoðar er Gróa Björg Baldvinsdóttir, rúmlega tvítug Búðardalsmær, Gunnar Hoyos, sonur hins þekkta Íslandsvinar og kynbótadómara á HM og knapa. Í janúar var einnig hjá okkur hin austurríska Daniela Pogatschnig en hún er núna komin í Gunnarsholt til Sigga Óla og Birnu sem voru að kafna úr verkefnum, starfsmannslaus.
Þau sitja hérna á þremur Árbakka tryppum, Ívari, Verði og Svarthöfða. Það er margt spennandi tryppa í gangi og það verður gaman að vinna áfram úr þessum hópi. Að auki eru hjá okkur hross af öllum tegundum og gerðum ti sölu, svo það er um að gera að hafa samband. Okkur finnst gott að ríða út hérna á Árbakka auk þess sem veðrið hefur allajafna leikið við okkur. Og ef eitthvað er að veðrinu er gott að hafa reiðskemmuna til að vinna í og er hún óspart notuð.