30. ágúst 2006 | 00:00

Brúðkaupsferð til Danmerkur

1. apríl ákvað bróðir minn, Ómar að láta pússa sig saman við sína heittelskuðu, Jóhönnu Guðrúnu, betur þekka sem Hönnu Gunnu og skyldi atburðurinn fara fram í Danmörku.  Þar er hann í doktorsnámi í efnaverkfræði en stefnir að því að koma heim sem fyrst.  Athöfnin fór fram í risastórri kirkju í miðborg Kaupmannahafnar og veislan var haldin í sal íþróttafélags ekki mjög langt frá.  Við mæðgurnar ákváðum að skella okkur og var ferðin hin skemmtilegasta.   Í leiðinni keyptum við mæðgurnar fermingarkjól á Eddu og svona fleira smálegt rataði í ferðatöskurnar.  Við vorum ekki þær einu sem lögðum land undir fót heldur komu um 50 manns frá Íslandi í tilefni þessa og skemmtu sér hið besta, vel og lengi fram eftir nóttu.

Við hittum einnig þarna föðursystur mína, Guðnýju sem hefur búið í Danmörku til margra ára og voru það skemmtilegir endurfundir.

Það er svo fréttnæmt þegar maður leggur land undir fót án þess að vera að fara að vinna að ég má bara til með að setja inn smá frétt um þetta!

 

 

 

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is