Árið 1997 var Hljómur orðinn 6 vetra gamall og nú var hann skráður í gæðingakeppni Fáks. Hana sigraði hann nokkuð örugglega með ekki ófrægari hest en Reyk frá Hoftúni í öðru sæti.
Íslandsmót í hestaíþróttum var haldið á Vindheimamelum þetta ár. Hulda mætti þar með Pistil frá Búlandi sem var þá nýkominn í okkar eigu. Þau urðu Íslandsmeistarar í fimmgangi og þriðju í gæðingaskeiði og í öðru sæti í 250 metra skeiði. Mikill gæðingur þar á ferð. Pistill er hálfbróðir Klakks frá Búlandi sem seinna varð svo heimsmeistari í fimmgangi. Hulda varð einnig Íslandsmeistari í slaktaumatölti á Nirði frá Aðalbóli.
Á heimsmeistaramót í Noregi fórum við en í fyrsts skipti í langan tíma án þess að vera sjálf með hest. Ekki var sveitin okkur þó alveg óviðkomandi því við höfðum fyrir mót keypt hlut í Glað frá Hólabaki sem seinna kemur við sögu auk þess sem við keytpum eftir mótið Gordon frá Stóru-Ásgeirsá og seldum áfram til núverandi eiganda, Bernds Schliekermann.
Annars bar það helst til tíðinda að í ágústmánuði þetta ár flutti fjölskyldan búferlum til Þýskalands með allt sitt hafurtask, hesta og hvaðeina.
Þar var eitt okkar fyrst verk að mæta á Norðurþýskt meistaramót og þar gekk alveg ljómandi vel, sigrar í höfn í nokkrum greinum, svo byrjunin lofaði góðu.