Hér á síðunni eru allar fréttir ársins 2009
Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Fjölskyldan á Árbakka óskar vinum, vandamönnum sem og öðrum lesendum síðunnar gleðilegs og hamingjuríks árs. Guð gefi öllum góða heilsu og bjarta framtíð.
Á myndinni er Gústi auðvitað á Knerri sínum, Hulda á Aroni frá Strandarhöfði, Edda Hrund á Tóni frá
Kostur Keilisson frá Árbakka sem hér hefur verið auglýstur á síðunni fór til Þýskalands nú á síðustu dögum ársins.
Þessi glæsilegi foli fór til Þýskalands og kaupendurnir voru þau Anja og Ingo Mueller sem mörgum eru kunn þar sem þau flytja hross um alla Evrópu og taka á
Hulda Gústafsdóttir var valin hestaíþróttakona ársins 2008 af LH. Er þetta í þriðja skipti sem Huldu hlotnast þessi heiður, fyrst 1998, þá 2005 og svo núna 2008. Fréttin og myndin hér á eftir er fengin að láni hjá hestafréttum en myndina tel ég að Jens Einarsson hafi tekið.
Já, það má nú segja að allt sé komið á fullt hjá okkur. Hjá okkur starfa nú þær Aðalheiður Guðjónsdóttir úr Mosfellsbæ og Jana Wattenberg frá Þýskalandi. Duglegar og flínkar stelpur og það gengur mikið undan þeim.
Hesthúsið fullt af gæðingum en bara samt passlega fullt, allir dekurhestarnir
Við erum þessa dagana að vinna í því að setja inn fleiri söluhross. Hér er það fyrsta.
Glæsilegur fulltrúi pabba síns, Arons frá Strandarhöfði, Tara frá Selfossi. Tara er fædd 2004, þ.e. er einungis á fimmta vetur. Fleiri myndir og upplýsingar er að finna á sölusíðunni.
Nú er búið að setja hér inn á síðuna upplýsingar um öll ræktunarhross hér á Árbakka. Now we have put information about all our breeding horses here on our site.
Undir flipanum Ræktun - Breeding má sjá upplýsingar um þá stóðhesta sem á Árbakka eru, hryssurnar sem við
Já, þá er janúarmánuður 2009 liðinn og horfinn í aldanna skaut. Það var mikið að gera í janúar á þessum bæ, allir hestar að komast í trimm en samt einhvern veginn svona ekki margar ástæður til að setjast niður og skrifa fréttir! Svona "ekkifréttamánuður" !
En auðvitað bara
Þriðjudaginn 3. febrúar var haldinn blaðamannafundur til kynningar á Meistaradeild VÍS. Sá átti heldur betur eftir að enda sögulega!
Fundurinn fór fram í Ráðhúsinu við Tjörnina og til þess svo að enda það myndrænt og eiga þar með meiri möguleika á að njóta athygli ljósvakamiðlanna var lagt á
Þann 19. febrúar fór fram keppni í fjórgangi Meistaradeildar VÍS. Hjónin stóðu sig vel með nýja hesta, bæði í A úrslitum og uppskeran 3. og 4. sætið!
Hinni og Náttar áttu ekki sérstaka forkeppni og þurftu að ríða B úrslit og sigruðu þau. Hulda átti aftur góða forkeppni
Þótt Gústaf Ásgeir sé ungur að árum ákvað hann að skella sér í úrtöku fyrir Meistardeild ungmenna sem Geysir og UMFÍ standa fyrir.
Svo hann lagði land undir fót með Knörr og Greifa og reið fjórgang, fimmgang og tölt. Gerði sér lítið fyrir og varð fjórði í samanlögðu.
Hulda ákvað að skella sér á ísinn og taka þátt í móti til stuðnings Landsliðinu okkar, Svellkaldar í Laugardalnum. Eftir forkeppnina var hún með báða hestana í úrslitum, Völsung í öðru sæti með 7,40 og hinn efnilega fjórgangshest sinn, Kjuða í fjórða sætinu með 6,93.
Ekki amalegur árangur
Og meistaradeildin heldur áfram! Hjónin bæði í B úrslitum, Hinni upp úr þeim og upp í annað sætið!
Held það sé óhætt að segja að hinn tæplega 6 vetra Hnokki hafi vakið nokkra athygli í slaktaumatöltinu. Hann var í fyrsta holli og varð dálítið hisaa á áhorfendunum svo