Ekki sátum við alveg aðgerðarlaus þau ár sem við vorum í Þýskalandi.
Árið 1998 náðum við góðum árangri á norðurþýska meistaramótinu, sem í það skiptið var haldið hjá okkur í Görnitz.
Í ágúst var svo Norðurlandamót í Danmörku og við buðum Huldu fram með Huginn frá Kjartansstöðum. Hulda fékk náð fyrir augum landsliðseinvalds og mætti þangað. Þar stóðu þau sig vel og sigruðu fimmgang og slaktaumatölt, urðu þriðju í gæðingaskeiði og önnur í samanlögðu. Huginn var þarna orðinn 17 vetra en lét engann bilbug á sér finna og stóð sig eins og hetja. Hulda var í kjölfarið valin hestaírþóttakona ársins á Íslandi, í fyrsta skipti sem þeim titli var úthlutað.
Árið 1999 komst Hinrik í Landslið kynbótahesta fyrir Heimsmeistaramótið í Þýskalandi með Glað frá Hólabaki. Það ár hafði hann einnig verið sýndur í þýskum kynbótadómi, hlaut þar í aðaleinkunn 8,72, fyrir hæfileika 8.91 og er enn þann dag í dag hæst dæmdi stóðhestur í Þýskalandi. Þar sýndi Hulda hryssuna Vök frá Schluensee sem varð í öðru sæti í flokki 6 vetra hryssa, rétt á eftir heimsmeistaramótsfaranum Jörp sem Andreas Trappe reið. Vök er undan Erni Hraunarssyni frá Akureyri og Von frá Sólheimum og fékk meðal annars 9,5 fyrir skeið. Þá settum við upp afkvæmasýningu fyrir Náttar frá Miðfelli, Náttfarason, sem var í eigu Augustar Beyer og fékk hann góð fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið.
Á Heimsmeistaramótinu sigraði Glaður sinn flokk og varð þannig í annað sinn heimsmeistari, nú í eldri flokki stóðhesta. Hinrik átti einnig drjúgan þátt í því að það tókst að fá Gordon frá Stóru-Ásgeirsá lánaðan fyrir Sigurbjörn Bárðarson sem eins og frægt varð, setti glæsilegt heimsmet á þessu móti. Í lok móts keyptum við svo gæðinginn Farsæl frá Arnarhóli, svo það var gaman að koma heim aftur eftir þetta mót.
Árið 2000 var svo Norðurlandamót í Noregi. Við buðum enn fram krafta okkar, Hinrik með Farsæl og Hulda með Eitil frá Akureyri, síungan og hressan, þá 16 vetra gamlan. Þar varð Hinrik tvöfaldur Norðurlandameistari, í fjórgangi og tölti. Hulda náði þriðja sæti í 250 metra skeið og öðru sætinu í 100 m skeiði á 7,6 sekúndum.
Af Eitli er það að segja að þegar við fluttum til Þýskalands gaf August Hinna hestinn aftur og hafði um hann þau orð að "hann hefði alltaf verið Bragason hestur" og rétti honum tauminn með leikrænum tilburðum. Eitill er stórbrotinn í keppni, er ekki allra og æsist fljótt upp. Eitill hefur verið betri en enginn í gegnum árin, alltaf staðið sig eins og hetja og aldrei brugðist þegar til hans hefur verið leitað. August á þar sinn þátt, hefur alla tíð hugsað vel um hann og séð um að hann væri í góðri þjálfun og liði vel á allan hátt. Á Agiedenberg, á heimavelli Walthers Feldmann, árið 1996 náðu þeir sínum besta tíma, 21,56 sekúndum og þeir áttu best 7,17 á handklukku í 100 m skeiði og það er til vitnis um það hversu ern Eitill er að þeim tíma náði hann haustið 2003 á Störtal. Svo nú er Eitill aftur í umsjá Augustar en í eigu Hinriks og líður vel í Görnitz.