tryppi070809gigjalong_litil
 
Our group of young horses born 2007, 2008 and 2009 in the summer of 2010
 
 
Árið 2005 keyptum við Árbakka í Landsveit, ásamt Jóni Björnssyni og Sigrúnu Björk Jakobsdóttur.  Þá tókum við við einum 90 ræktunarhrossum, hryssum og tryppum á ýmsum aldri.  Nú höfum við tekið til við að setja okkar mark á ræktunina á Árbakka.  Árið 2010 kom svo Piet Hoyos inn í ræktunina með okkur og á nú einn þriðja af henni ásamt okkur og Jóni og Sigrúnu.
Á þessum síðum eru upplýsingar um þau hross sem nú eru í ræktuninni á Árbakka auk þess  sem ætlunin er að setja inn upplýsingar jafnóðum um þau folöld sem fæðast og annað í þeim dúr.   Ætlunin er að hafa sem allra mest af myndum svo lesningin verði meira lifandi.  Hér til vinstri eru hnappar sem leiða áfram á stóðhesta og hryssur og í vinnslu er síða með unghrossum og folöldum sem verður væntanlega í formi myndabanka af hverjum árgangi fyrir sig.
Við viljum leggja metnað í ræktunina.  Öll folöld sem og hryssur og stóðhestar eru DNA greind og leikur því enginn vafi á ætterni.  Við þekkjum núorðið hryssurnar allar vel, höfum sýnt margar þeirra sjálf og riðið flestum.  Við leggjum áherslu á gott tölt, gott geðslag, fallega byggingu og hross em henta á hringvallakeppni.  En síðast en ekki síst þarf að vera gaman að ríða þeim og horfa á þau.
 
On these pages (see on the left) we have information about our stallions (stóðhestar) and breeding mares (ræktunarhryssur).  Soon there will also be information about our young horses (unghross) growing up.
We are ambitious in our breeding, we have all our stallions and mares DNA prooved and since 2007 also every foal  So there is no doubt about anything.  We use only top quality stallions and it is important for us to know the mares ourselves and this we have managed, we either showed or have ridden almost all the mares in our breeding.  We want good tölt, flawless character with strong nerves, beautiful and correct building and horses that fit for competitions as well as for pleasure riding.
Have fun looking around.  In the spring of 2009 we are expecting foals out of 9 first price mares so this is really getting more and more fun every year.  In the spring 2010 we had foals out of 10 first price mares and 3 shown good mares even though not with first price.
 

                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is