
Völsungur á góðri stund í garðinum
Á þessari síðu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem eru á Árbakka. Neðst eru svo hestar sem hafa verið í okkar eigu en sá listi er þó engan veginn tæmandi.
On this page we have a list of the stallions in Árbakki. Down below some of the horses we have had before, but not nearly all of them.

Náttar frá Þorláksstöðum er hálfbróðir Lokks frá Þorláksstöðum, móskjótta gæðingsins sem margir muna eftir.
Hann er svo undan hinum þekkta gæðingi Ófeigi frá Þorláksstöðum. Náttar er einstaklega geðgóður og meðfærilegur. Hann var sýndur á Gaddstaðaflötum vorið 2008 en er engan veginn fulldæmdur að okkar mati. Því sýndum við hann aftur á síðsumarsýningu 2009 og þá fékk hann þær einkunnir sem hann að okkar mati á skilið.
Hann hefur gert það gott í íþróttakeppni, einungs 6 vetra gamall var hann í úrslitum á Íslandsmóti barna og unglinga með Eddu Hrund á baki og sigraði opinn flokk á Akranesi haustið 2008 með 7,57 í einkunn, hans fyrsta fjórgangskeppni í fullorðinskeppni. Árið 2009 stimplaði hann sig fyrir alvöru inn, var í úrslitum á öllum mótum sem hann tók þátt í í fjórgangi, meðal annars í fjórða sæti á Íslandsmóti á Akureyri. Hann er mjög jafnvígur, fetið algert úrval og rýmið mikið. Við bindum miklar vonir við þennan hest, ekki síst á keppnisbrautinni.
F: Ófeigur frá Þorláksstöðum FF: Nölkkvi frá Vestra-Geldingaholti FM: Komma frá Þorláksstöðum
M: Krummatá frá Þorláksstöðum MF: Kafli frá Holi MM: Pumpa frá Þorláksstöðum
Sýnandi: Hinrik BragasonMál (cm):142 133 139 61 148 39 49 446,8 32,0 19,5 Hófa mál:V.fr. 8,9 V.a. 7,9Aðaleinkunn: 8,24 |
Sköpulag: 8,15 |
Kostir: 8,30 |
|
Höfuð: 8,0 Háls/herðar/bógar: 8,0 Skásettir bógar Háar herðar Djúpur Bak og lend: 8,5 Breitt bak Jöfn lend Samræmi: 8,5 Léttbyggt Sívalvaxið Fótagerð: 7,5 Sverir liðir Öflugar sinar Lítil sinaskil Réttleiki: 7,0 Afturfætur: Nágengir Hófar: 9,0 Djúpir Sléttir Efnisþykkir Þykkir hælar Prúðleiki: 8,5 |
Tölt: 9,0 Taktgott Há fótlyfta Mjúkt Brokk: 8,5 Skrefmikið Skeið: 5,0 Stökk: 8,5 Hátt Takthreint Vilji og geðslag: 9,0 Þjálni Vakandi Fegurð í reið: 9,0 Mikið fas Mikil reising Fet: 9,0 Taktgott Skrefmikið Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,5 |
Hér fyrir neðan eru hestar sem ekki eru lengur í okkar eigu en við höfum átt og/eða notað.
Here below there are stallions which we no longer have but at some time we have either had or used.