Fyrir nokkrum árum prófuðum við hnakk sem vinur okkar og viðskiptafélagi í Austurríki, Piet Hoyos, hefur látið hanna og smíða. Það er skemmst frá því að segja að við urðum svo hrifin af hnökkunum að við keyptum okkur sitt hvorn og höfum notað þá síðan.
Fyrir þá sem ekki þekkja Piet þá hefur hann alist upp með íslenskum hestum, rekur stóran hestabúgarð í Semriach í Austurríki Evrópumót í hestaíþróttum fór fram 1975. Hann hefur margoft verið í austurríska landsliðinu og er þekktur reiðkennari og knapi í Austurríki og víðar. Auk þess er hann dómari og var til dæmis liðsstjóri austurríska landsliðsins í Danmörku 2003. Hann er margfaldur austurrískur meistari í hestaíþróttum og hefur náð mjög góðum árangri á alþjóðlegum vettvangi, varð m.a. heimsmeistari með stóðhestinn
Ýmsir hafa, á liðnum árum, fengið að reyna hnakkinn og hafa orðið svo hrifnir af honum að eitt leiddi af öðru og í dag flytjum við þessa hnakka inn og seljum.
Hnakkurinn er spaðalaus og með sveigjanlegu virki sem gerir það að verkum að hann lagar sig feikilega vel bæði að knapa og hesti. Sætið í honum er það langt að knapinn er hreyfanlegur í honum en þó það stuttur að hann passar á jafnvel allra bakstystu hross. Hann gefur frábært sæti, styður við hnén, án þess að skorða knapann fastan, rennur ógjarnan fram og er einnig mjúkur ásetu og hentar því jafnvel í ferðalög sem keppni.
Hann er mjög vandaður að allri gerð, smíðaður hjá hinu þekkta söðlasmíðaverkstæði Trieb í Austurríki sem meðal annars smíðaði suma gömlu Görtz hnakkana og smíðar einnig hnakka hannaða af Hans Georg Gundlach. Leðrið og allur saumaskapur er því fyrsta flokks.
Hann er fáanlegur í ýmsum útfærslum, með mislöngum löfum, með venjulegum og löngum móttökum, misvíðu virki og svo framvegis. Einnig er hægt að sérpanta þá brúna eða nánast hvernig sem er á litinn.
Ef þú hefur áhuga á að skoða hnakkinn betur þá er þér velkomið að senda tölvupóst eða hringja og jafnvel fá að prófa hnakkinn hjá okkur.