Það má spara sér margan áreksturinn og stytta sér leið með því að sækja sér ráðleggingar og aðstoð áður en í óefni er komið.

Það þurfa ekki allir að finna upp hjólið!

Leita

Reiðkennsla Huldu og Hinna     

Hinrik og Hulda hafa bæði langa og mikla reynslu af því að leiðbeina knöpum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. 

Við erum stolt af því að hafa getað hjálpað fólki að ná markmiðum sínum, hvort sem er með því að gera útreiðatúrana skemmtilegri eða að ná meiri og betri árangri á keppnisvellinum.

Við byggjum kennslu okkar á langri reynslu í keppni og kennslu sem og lestri góðra bóka og greina um efnið auk kynnum af ótalmörgum hestum og knöpum.

Við tökum að okkur bæði helgarnámskeið og námskeið sem standa yfir í afmarkaðan tíma.  Einnig eru ýmsir sem koma reglulega meira og minna allan veturinn og jafnvel allt árið, ýmist í smærri hópum eða í einkatíma.  Við kennum ekki í stærri hópum en 4-5 manns, það er algert hámark að okkar mati til að allir fái sinn tíma og þá athygli og eftirfylgni sem með þarf.

Kennslan er sniðin að þörfum og óskum hvers og eins en byggir á nokkrum grundvallaratriðum sem eru nánar tíunduð hér að neðan.

Kennt er í gerði, á hringvelli eða reiðhöll eftir því sem verkast vill.  Ef um hópa er að ræða komum við einnig á staðinn.  Auk þess förum við nokkrum sinnum á ári erlendis til að halda þar helgarnámskeið og er þar eftirspurnin meiri en framboðið því helgarnar eru einfaldlega of fáar í árinu.

Verið ekki feimin við að hafa samband við okkur og leita upplýsinga, annaðhvort með því að senda tölvupóst á hestvit@hestvit.is eða hringja í síma 897 1744 (Hulda) eða 897 1748 (Hinni)

 


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is