Á þessari síðu eru upplýsingar um þær hryssur sem eru í ræktun á Árbakka. 
 Góða skemmtun við að skoða!
Here you can see a list of our mares.  In the spring of 2009 we are expecting foals from 9 first price mares. 
 
| Hryssur

Saga frá Lynghaga - Aðaleinkunn 8,29

Saga frá Lynghaga er mikill gæðingur og er orðin þekkt á keppnisbrautinni.  Hún er viljug, hreingeng og flugrúm, ekki bara á skeiði heldur líka á brokki og tölti.  Taugasterk og alltaf til í að taka á.

F: Stígur frá Kjartanstöðum (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FM: Terna frá Kirkjubæ (Stóðhestamóðir mikil)

M: Rimma frá Ásgarði MF: Penni frá Arnarhóli, mikill gæðingur og skeiðgarpur MM: Dúna frá Strönd.

Á afrekalista Sögu eru verðlaun í 100 m skeiði, Íslandsmeistaratitill í opnum flokki gæðingaskeiðs, sigurvegari vorgæðingamóts Fáks, B úrslit í A flokki á Landsmóti og svo mætti lengi telja.  Því miður hefur gengið illa að koma folaldi í hana Sögu okkar en hún fær nú samt að vera hér með á lista.  Einu sinni hefur verið staðfesti í henni fyl en því miður lét hún því og síðan ekki söguna meir.  Saga er fædd 1992.  Hún var með góð fyrstu verðlaun þegar við eignuðumst hana en okkur langaði að ná í "skeiðeinkunnina hennar" svo hún var sýnd aftur 2007 og hlaut þá þennan dóm.

Hæsti dómur:

Mál (cm):

138   134   65   140   26,5   17,0  

Hófa mál:

V.fr. 9,3   V.a. 8,3  

Aðaleinkunn: 8,29

Sköpulag: 7,90

Kostir: 8,55


Höfuð: 8,0
   Vel opin augu  

Háls/herðar/bógar: 8,5
   Grannur   Hátt settur   Klipin kverk  

Bak og lend: 8,0

Samræmi: 8,0
   Hlutfallarétt  

Fótagerð: 7,0

Réttleiki: 8,5

Hófar: 7,5

Prúðleiki: 7,0

Tölt: 8,5
   Taktgott   Mjúkt  

Brokk: 8,0
   Taktgott  

Skeið: 9,5
   Ferðmikið   Takthreint   Öruggt  

Stökk: 8,0

Vilji og geðslag: 9,0
   Ásækni   Þjálni  

Fegurð í reið: 8,0

Fet: 7,5

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 7,5



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is