Á þessari síðu eru upplýsingar um þær hryssur sem eru í ræktun á Árbakka. 
 Góða skemmtun við að skoða!
Here you can see a list of our mares.  In the spring of 2009 we are expecting foals from 9 first price mares. 
 
| Hryssur

Embla frá Oddgeirshólum - Aðaleinkunn 8.08

Emblu frá Oddgeirshólum sáum við í reið fyrir nokkrum árum og föluðum þá.  Ekki var hún þá til sölu en á þessu ári lukkaðist okkur að eignast þessa gæðingshryssu.  Okkur langaði í góða hryssu undan Baldri og hér var hún komin.  Um margt týpískt Baldursbarn, stórstíg og rúm, flugvökur með frábært fet.  Svo við hlökkum mikið til að fá undan henni mörg afkvæmi.  Hún er fædd 1996 og ekki skemmir liturinn heldur, leirljósblesótt.

F: Baldur frá Bakka (Heimsmeistari í 5 gangi 1999) FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði (Heiðursverðlaun f afkvæmi) MM: Sandra frá Bakka

M: Buska frá Oddgeirshólum MF: Léttir frá Sauðárkróki MM: Buska frá Hróarsholti

Myndin er tekin í janúar 2009 í gerðinu og hér er hún ásamt Vilmu Vilmundardóttur fæddri 2008.    Neðst má svo sjá hana, háfætta og vikugamla með móður sinni moldóttri.

Folöld:

2004 Heiðar frá Austurkoti undan Hugi frá Hallanda, bygging 8.07, í eigu Austurkots ehf

2005 Álfheiður frá Oddgeirshólum undan Álfi frá Selfossi

2007 Díva frá Oddgeirshólum undan Karra frá Neðra-Seli

2008 Vilma frá Árbakka undan Vilmundi frá Feti

2009 Askur frá Árbakka undan Aroni frá Strandarhöfði

2010 er hún fylfull við Hnokka frá Fellskoti

Mál (cm):

136   135   63   135   27,0   17,0  

Hófa mál:

V.fr. 8,2   V.a. 7,4  

Aðaleinkunn: 8,08

Sköpulag: 8,13

Kostir: 8,05


Höfuð: 8,5
   Skarpt/þurrt   Fínleg eyru   Vel borin eyru  

Háls/herðar/bógar: 8,5
   Langur   Hátt settur  

Bak og lend: 7,5
   Grunn lend  

Samræmi: 8,0
   Fótahátt  

Fótagerð: 8,0
   Rétt fótstaða   Mikil sinaskil  

Réttleiki: 8,0

Hófar: 8,0
   Efnisþykkir   Kúptir hófar  

Prúðleiki: 8,0

Tölt: 8,0
   Taktgott  

Brokk: 8,0
   Taktgott  

Skeið: 8,0
   Takthreint   Öruggt  

Stökk: 8,5
   Ferðmikið  

Vilji og geðslag: 8,0
   Reiðvilji   Þjálni  

Fegurð í reið: 8,0

Fet: 8,5
   Rösklegt  

Hægt tölt: 8,0

Hægt stökk: 8,0



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is