Á þessari síðu eru upplýsingar um þær hryssur sem eru í ræktun á Árbakka. 
 Góða skemmtun við að skoða!
Here you can see a list of our mares.  In the spring of 2009 we are expecting foals from 9 first price mares. 
 
| Hryssur

Sylvía Nótt frá Haukagili - Aðaleinkunn 8,05

Sylvía Nótt frá Haukagili er alhliða hryssa undan Otri frá Sauðárkróki.  Hún er hágeng strax á hægu, með frábært tölt og gott brokk.  Skeiðið var í mikilli framför þennan vetur sem hun var í þjálfun hjá okkur og gæti vafalaust orðið betra með meiri þjálfun.  Stór og myndarleg hryssa sem við höfum mikla trú á í ræktuninni.  Hún er skemmtileg blanda af Otri og Hrafni en sú blanda hefur víða virkað vel í ræktuninni.  Edda Hrund, heimasætan á bænum keppti á henni í fimmgangi unglingaflokks og komst í úrslit á Íslandsmóti barna og unglinga 2007.  Myndin er tekin við það tækifæri.

F: Otur frá Sauðárkróki FF: Hervar frá Sauðárkróki (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FM: Hrafnkatla frá Sauðárkróki (Heiðursverðlaun f afkvæmi)

M: Harpa frá Bakka MF: Hrafn frá Holtsmúla (Heiðursverðlaun f afkvæmi)MM: Emma frá Bakka (hálfsystir Söndru frá Bakka, móður Baldurs frá Bakka)

Sylvía var staðfest fylfull 2007 en lét því miður um veturinn. 

 2009 Salvar Örn frá Árbakka undan Erni frá Efri-Gegnishólum.

2010 er hún fylfull við Straumi frá Breiðholti

Mál (cm):

145   139   65   145   28,0   18,5  

Hófa mál:

V.fr. 9,4   V.a. 7,8  

Aðaleinkunn: 8,05

Sköpulag: 8,13

Kostir: 8,00


Höfuð: 7,5

Háls/herðar/bógar: 8,5
   Langur   Hátt settur  

Bak og lend: 7,5
   Beint bak   Áslend  

Samræmi: 8,0
   Fótahátt   Afturstutt  

Fótagerð: 8,5
   Öflugar sinar  

Réttleiki: 7,5
   Afturfætur: Innskeifir   Nágengir  

Hófar: 8,5
   Djúpir   Efnisþykkir   Þykkir hælar  

Prúðleiki: 7,0

Tölt: 8,5
   Taktgott  

Brokk: 8,0
   Taktgott  

Skeið: 7,5
   Óöruggt  

Stökk: 7,0
   Ferðlítið  

Vilji og geðslag: 8,0
   Reiðvilji  

Fegurð í reið: 8,0

Fet: 9,0
   Taktgott   Skrefmikið  

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,0



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is