Á þessari síðu eru upplýsingar um þær hryssur sem eru í ræktun á Árbakka. 
 Góða skemmtun við að skoða!
Here you can see a list of our mares.  In the spring of 2009 we are expecting foals from 9 first price mares. 
 
| Hryssur

Hind frá Árbakka

Hind er hreinræktuð Kolkuóshryssa  og hefur gefið tryppi með frábæra frambyggingu.  Háfætt og fallega geng og það eina sem við erum búin að temja, Hatta reyndist hágeng og geðgóð. 

F: Svaði frá Árbakka, FF: Byskup frá Hólum FM: Embla frá Árbakka

M: Freyja frá Stokkhólma MF: Sindri frá Stokkhólma MM: Gullblesa frá Kirkjubæ

Hér er mynd af Hind með Arnari frá Árbakka, syni hennar undan Erni frá Efri-Gegnishólum.

Afkvæmi:

2004 Hatta frá Árbakka undan Gelli frá Árbakka, seld norður í Húnavatnssýslu

2005 Skurður frá Árbakka, brúnskjóttur undan Létti frá Árbakka.  Honum björguðum við naumlega úr skurði þegar hann var örfárra vikna gamall og þaðan kemur nafnið.

2006 Prins frá Árbakka, brúnn undan Pegasus frá Skyggni, seldur til fjölskyldu Eiðs Smára Guðjohnsen

2007 Heimir frá Árbakka, móálóttur undan Óskahrafni frá Brún, sedur til Austurríkismanns sem geymir hann enn um sinn á Ísland

2008 Hari frá Árbakka, rauður hestur undan Aroni frá Strandarhöfði

2009 Arnar frá Árbakka undan Erni frá Efri-Gegnishólum

2010 er Hind því miður geld



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is