Á þessari síðu eru upplýsingar um þær hryssur sem eru í ræktun á Árbakka. 
 Góða skemmtun við að skoða!
Here you can see a list of our breeding mares and their offsprings. 
 
| Hryssur

Þota komst í okkar eigu vorið 2007. Við riðum henni í 2 mánuði og kynntumst henni og síðan fór hún undir Aron frá Strandarhöfði. Á þeim tíma keppti Hulda á henni í Kvennatölti í Gusti og varð í þriðja sæti á móti margreyndum tölthrossum, Þota einungis 7 vetra gömul.

| Hryssur

Saga frá Lynghaga er mikill gæðingur og er orðin þekkt á keppnisbrautinni. Hún er viljug, hreingeng og flugrúm, ekki bara á skeiði heldur líka á brokki og tölti. Taugasterk og alltaf til í að taka á. F: Stígur frá Kjartanstöðum (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði (Heiðursverðlaun

| Hryssur

Dimma frá Efri-Rauðlæk er að byrja að sanna sig í rækuninni. Undan henni sýndi Hinni Orradótturina Dimmalimm frá Árbakka á Landsmótinu 2008 og fór hún beint í fyrstu verðlaun. Dimma var viljug skörungshryssa í reið, alhliða og jafnvíg. Hún er framfalleg og gefur það einnig. Það verður gaman

| Hryssur

Rósa frá Svalbarða er jafnvíg alhliða hryssa fædd 2000. Hún sigraði eldri flokk hryssna á Fjórðungsmót á Austurlandi 2007. Rósa er með frábært tölt og er flugrúm á öllum gangi, viljug og hágeng. F: Hilmir frá Sauðárkróki FF: Ófeigur frá Flugumýri (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FM: Herva,

| Hryssur

Dimmalimm er fædd 2004 og því ung að árum. Hún var sýnd í fyrsta skiptí á Sörlastöðum og flaug þar í fín fyrstu verðlaun. Hún er viljug og vakandi, töltið hennar aðall enn sem komið er en hún á mikið inni. Hún er þar með fyrsta hrossið sem kennt er

| Hryssur

Edda er stór og myndarleg alhliða hryssa, flugvökur og rúm. F: Heimir frá Búðardal FF: Otur frá Sauðárkróki (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FM:Bára frá Gunnarsholti M: Edda frá Eystri-Torfastöðum MF: Þokki frá Garði (Heiðursverðlaun f afkvæmi) MM:Edda frá Bjargarkoti Hér er mynd af Eddu þar

| Hryssur

Emblu frá Oddgeirshólum sáum við í reið fyrir nokkrum árum og föluðum þá. Ekki var hún þá til sölu en á þessu ári lukkaðist okkur að eignast þessa gæðingshryssu. Okkur langaði í góða hryssu undan Baldri og hér var hún komin. Um margt týpískt Baldursbarn, stórstíg og rúm, flugvökur með

| Hryssur

Sylvía Nótt frá Haukagili er alhliða hryssa undan Otri frá Sauðárkróki. Hún er hágeng strax á hægu, með frábært tölt og gott brokk. Skeiðið var í mikilli framför þennan vetur sem hun var í þjálfun hjá okkur og gæti vafalaust orðið betra með meiri þjálfun. Stór og myndarleg hryssa sem

| Hryssur

Rebekka er alhliða hryssa, jafngóð, viljug og hágeng. Fríð og framfalleg. Ættin blanda af ýmsum leggjum. Það verður gaman að sjá hvernig hún kemur út en hún á orðið tvo jarpa syni með Arni frá Strandarhöfði, báða stórmyndarlega. F: Þróttur frá Borgarholti FF: Þótti frá Hólum FM: Toppa

| Hryssur

Gríma er ein af þeim hryssum sem við eignuðumst þegar við keyptum Árbakka. Sannkölluð hagaprýði, enda faxprýði hennar með ólíkindum. Enda með 10 fyrir þann þátt. En hún er ekki bara falleg þessi elska. Hún er hágeng og stórstíg klárhryssa og við höfum mikla trú á henni í

| Hryssur

Flugu frá Garði komu þeir feðgar, Jón og Björn með að norðan og komu fyrir hér á Árbakka. Hér er á ferðinni hörkuhryssa, mun betri en kannski tölurnar segja, segja þeir sem hana þekktu í reið. Afkvæming enda alveg gullfalleg. Sú elsta, Fiðla frá Árbakka gullfalleg hryssa slasaðist

| Hryssur

Gnótt var mjög hágeng og viljug í reið, tók meðal annars þátt í afkvæmasýningu Galsa til heiðursverðlauna á LM 2006 og þótt flott! Sýningin á henni örugglega ekki fullnaðardómur en svona er þetta stundum. Okkur líst mjög vel á tryppin undan henni, hvert öðru glæsilegra, það fyrsta temjum við haustið

| Hryssur

Toppu frá Ármóti muna margir eftir með Hinna á baki m.a. á Landsmóti 2006 í skeiði. Hún hefur feikn fallegt skeiðsnið, er hágeng og skrefmikil á því. En Toppa er langt í frá einhliða skeiðhross, hún er feikna rúm á brokki, mikið hágeng og viljug. Hún er fædd 1998. Það

| Hryssur

Myrra frá Árbakka er hálfsystir Gellis frá Árbakka, hins hátt dæmda fjórgangshests sem er danskur meistari í fjórgangi 2008 með Julie Christiansen sem knapa. Myrra er fædd 1995 og hreinræktuð Kolkuóshryssa og um flest týpískt sem slík. Fíngerð og fríð, geðgóð og skemmtileg í umgengni. Myrra slasaðist í

| Hryssur

Hind er hreinræktuð Kolkuóshryssa og hefur gefið tryppi með frábæra frambyggingu. Háfætt og fallega geng og það eina sem við erum búin að temja, Hatta reyndist hágeng og geðgóð. F: Svaði frá Árbakka, FF: Byskup frá Hólum FM: Embla frá Árbakka M: Freyja frá Stokkhólma MF:

| Hryssur

Mist frá Vestri-Leirárgörðum eignuðumst við haustið 2008. Edda Hrund þjálfaði hana veturinn 2008 og gekk vel og urðum við hrifin af hryssunni. Jafnvíg á gangtegundir, viljug og hágeng klárhryssa. Edda keppti svo lítillega á henni um vorið með prýðilegum árangri, varð reyndar svo óheppin að fara á kýrstökki

| Hryssur

Drífa frá Miðhjáleigu er alhliða hryssa, hreingeng og flugvökur. Viljug og skemmtileg. Drífa var lengst af í eigu Susi Haugaard sem hefur unnið hjá okkur með hléum frá því 2003. Drífa er fædd 1993 og þar sem Susi er landlaus ákvað hún að gefa frúnni á Árbakka Drífu

| Hryssur

Þórdís frá Reykjavík komst aftur í okkar eigu í sumar og þykir okkur alveg sérstaklega vænt um hana. Hún er ræktuð af þeim feðgum Ragnari Tómassyni yngri og Tómasi Ragnarssyni heitnum vini okkar og þegar hún var tveggja vetra komst hún í eigu Tómasar og Hinriks. Þegar við

| Hryssur

Vika frá Árbakka er einstaklega geðgóð, hágeng og glæsileg klárhryssa. Ætlunin var að sýna hana í hæfileikadómi 2010 en sökum hóstapestarinnar var það aldrei gert. Hún er seld með þeim formerkjum að við fáum fyrst undan henni eina hryssu og því verður hún hjá okkur þar til sú

| Hryssur

Mylla er með hreint óvenjulegar hreyfinga, rauðskjótt og er fædd 2005. Mylla has unusual movements, high and wide and will get into our breeding. Hún er fædd 2005 og er þegar þetta er ritað enn í þjálfun og er áætlað að sýna hana aftur vorið 2011 en vegna

| Hryssur

Flétta frá Árbakka er glæsiklárhryssa sem við bindum miklar vonir við. Hún var sýnd á árinu 2011 og fékk í aðaleinkunn 8.20, klárhryssa. Á Landsmótinu 2011 fékk hún svo 9.5 fyrir hægt tölt og stór klapp frá brekkunni á yfirlitinu fyrir hægt tölt. Hún er undan Leikni frá Vakurstöðum og


 

Hér fyrir neðan eru hryssur sem við höfum átt og eru seldar eða fallnar.

Gyðja er glimrandi góð alhliða hryssa sem hér er. Haustið 2010 seldum við hana til Þýskalands ásamt syni hennar Gabríel og fylfulla við Glym frá Flekkudal. Við óskum nýjum eigendum til hamingju með hana. Brún að lit og fædd 1999. Hún er frábærlega skemmtileg í stóði, alltaf spök.

Saga frá Árbakka er hreinræktuð Kolkuóhryssa, fríð, háfætt og hágeng. Hún er fædd 1997 en hennar fyrsta folald fæðist 2005. Þau hafa verið hvert öðru fallegra enda báðar hryssurnar undan henni seldar. Vorið 2010 seldum við Sögu þýskri konu sem er einlægur aðdáandi Kolkuóshrossanna. Hún er nú á Skíðbakka III

Við sýndum hana í vor á Hellu og vorum engan veginn sátt við tölurnar hennar en þar sem við þekkjum hana eins og hún er og hún komst þó yfir hin frægu 8,0 mörk ákváðum við að halda henni strax í sumar en splæsa ekki öðru ári á hana í



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is