
Völsungur á góðri stund í garðinum
Á þessari síðu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem eru á Árbakka. Neðst eru svo hestar sem hafa verið í okkar eigu en sá listi er þó engan veginn tæmandi.
On this page we have a list of the stallions in Árbakki. Down below some of the horses we have had before, but not nearly all of them.

Straumur frá Breiðholti er enn einn glæsihesturinn.
Straumur er fæddur 2002 undan Hrynjanda frá Hrepphólum og er þar með hálfbróðir Hnokka. Stígandi er svo aftur undan Stíganda frá Sauðárkróki og Von frá Hrepphólum. Móðir Straums heitir Hrund frá Torfunesi og er undan Safír frá Viðvík og Virðingu frá Torfunesi. Hrund er einnig móðir gæðingshryssunnar Daggar frá Breiðholti sem gerði garðinn frægann á Landsmóti 2004 eins og margir muna eftir.
Straumur er stórstígur, alhliða gæðingur, viljugur og jákvæður. Straumur er hestur sem vafalaust á eftir að láta að sér kveða, jafnt á keppnisvellinum sem í ræktun.
144 132 139 66 145 40 49 44 6,7 31,0 19,0
V.fr. 8,9 V.a. 8,1
Sköpulag: 8,28 |
Kostir: 8,50 |
|
Höfuð: 8,0 Myndarlegt Vel opin augu Háls/herðar/bógar: 8,5 Reistur Skásettir bógar Háar herðar Djúpur Bak og lend: 8,0 Afturdregin lend Samræmi: 8,5 Fótahátt Sívalvaxið Fótagerð: 8,0 Öflugar sinar Réttleiki: 8,0 Framfætur: Útskeifir Hófar: 8,5 Þykkir hælar Prúðleiki: 7,5 |
Tölt: 8,5 Skrefmikið Brokk: 8,5 Rúmt Skrefmikið Skeið: 9,0 Takthreint Öruggt Svifmikið Stökk: 8,0 Vilji og geðslag: 8,5 Ásækni Þjálni Fegurð í reið: 8,5 Fet: 7,0 Skrefstutt Framtakslítið Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,0 |
Hér fyrir neðan eru hestar sem ekki eru lengur í okkar eigu en við höfum átt og/eða notað.
Here below there are stallions which we no longer have but at some time we have either had or used.