Völsungur á góðri stund í garðinum

Leita

 Á þessari síðu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem eru á Árbakka.  Neðst eru svo hestar sem hafa verið í okkar eigu en sá listi er þó engan veginn tæmandi.

On this page we have a list of the stallions in Árbakki.  Down below some of the horses we have had before, but not nearly all of them. 

 

| Stóðhestar

Náttar frá Þorláksstöðum - Aðaleinkunn 8,24

Náttar frá Þorláksstöðum er hálfbróðir Lokks frá Þorláksstöðum, móskjótta gæðingsins sem margir muna eftir.

Hann er svo undan hinum þekkta gæðingi Ófeigi frá Þorláksstöðum.  Náttar er einstaklega geðgóður og meðfærilegur.  Hann var sýndur á Gaddstaðaflötum vorið 2008 en er engan veginn fulldæmdur að okkar mati.   Því sýndum við hann aftur á síðsumarsýningu 2009 og þá fékk hann þær einkunnir sem hann að okkar mati á skilið. 

Hann hefur gert það gott í íþróttakeppni, einungs 6 vetra gamall var hann í úrslitum á Íslandsmóti barna og unglinga með Eddu Hrund á baki og sigraði opinn flokk á Akranesi haustið 2008 með 7,57 í einkunn, hans fyrsta fjórgangskeppni í fullorðinskeppni.  Árið 2009 stimplaði hann sig fyrir alvöru inn, var í úrslitum á öllum mótum sem hann tók þátt í í fjórgangi, meðal annars í fjórða sæti á Íslandsmóti á Akureyri.  Hann er mjög jafnvígur, fetið algert úrval og rýmið mikið.  Við bindum miklar vonir við þennan hest, ekki síst á keppnisbrautinni. 

F: Ófeigur frá Þorláksstöðum FF: Nölkkvi frá Vestra-Geldingaholti FM: Komma frá Þorláksstöðum

M: Krummatá frá Þorláksstöðum MF: Kafli frá Holi MM: Pumpa frá Þorláksstöðum

Síðsumarsýning á Gaddstaðaflötum

Dagsetning móts: 17.08.2009 - Mótsnúmer: 14
Íslenskur dómur

IS-2002.1.25-015 Náttar frá Þorláksstöðum

Sýnandi: Hinrik Bragason

Mál (cm):

142   133   139   61   148   39   49   44  
6,8   32,0   19,5  

Hófa mál:

V.fr. 8,9   V.a. 7,9  

Aðaleinkunn: 8,24


Sköpulag: 8,15

Kostir: 8,30


Höfuð: 8,0

Háls/herðar/bógar: 8,0
   Skásettir bógar   Háar herðar   Djúpur  

Bak og lend: 8,5
   Breitt bak   Jöfn lend  

Samræmi: 8,5
   Léttbyggt   Sívalvaxið  

Fótagerð: 7,5
   Sverir liðir   Öflugar sinar   Lítil sinaskil  

Réttleiki: 7,0
   Afturfætur: Nágengir  

Hófar: 9,0
   Djúpir   Sléttir   Efnisþykkir   Þykkir hælar  

Prúðleiki: 8,5

Tölt: 9,0
   Taktgott   Há fótlyfta   Mjúkt  

Brokk: 8,5
   Skrefmikið  

Skeið: 5,0

Stökk: 8,5
   Hátt   Takthreint  

Vilji og geðslag: 9,0
   Þjálni   Vakandi  

Fegurð í reið: 9,0
   Mikið fas   Mikil reising  

Fet: 9,0
   Taktgott   Skrefmikið  

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,5

Til baka
Prentvæn útgáfa

 Hér fyrir neðan eru hestar sem ekki eru lengur í okkar eigu en við höfum átt og/eða notað.

Here below there are stallions which we no longer have but at some time we have either had or used.


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is