
Völsungur á góðri stund í garðinum
Á þessari síðu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem eru á Árbakka. Neðst eru svo hestar sem hafa verið í okkar eigu en sá listi er þó engan veginn tæmandi.
On this page we have a list of the stallions in Árbakki. Down below some of the horses we have had before, but not nearly all of them.

Sám sá Hinni á úrtöku fyrir Landsmót 2008 og varð strax hrifinn. Nokkru seinna tókust samningar við ræktandann og eigandann Vigni Sigurðsson og Sámur kom á Árbakka. Á sínu fyrsta iþróttamóti fengu þeir félagar 6,80 í drullusvaði á Akrnaesi í ágúst 2008 og hafði áður náð góðum árangri í A flokki og fimmgangi hjá Vigni norður í Eyjafirði. Sámur er spennandi keppnishestur, eins og fyrr segir, geðgóður, viljugur og með jafnar og góðar einkunnir. . Það er gaman að því að móðir Sáms, Syrpa frá Ytri-Hofdölum er hálfsystir Glæsis frá Ytri-Hofdölum, keppnishests Eddu Hrundar sem öll Árbakkafjölskyldan hefur keppt á með góðum árangri.
F: Garpur frá Auðsholtshjáleigur 1. verðlaun afkvæmi FF: Orri frá Þúfu (Heiðursverðlaun afkvæmi) FM: Hildur frá Garðabæ
M: Syrpa frá Ytri-Hofdölum MF: Gassi frá Vorsabæ MM: Lísa frá Koti
Á myndinni er Vignir Sigurðsson á Sámi í úrtöku fyrir Landsmót 2008 þar sem hann komst inn.
Hæsti dómur:
145 131 138 66 142 38 43 39 6,6 30,0 20,0
V.fr. 8,3 V.a. 7,9
Sköpulag: 8,09 |
Kostir: 8,30 |
|
Höfuð: 7,5 Svipgott Fínleg eyru Kónganef Háls/herðar/bógar: 8,0 Mjúkur Skásettir bógar Þykkur Djúpur Bak og lend: 8,0 Samræmi: 8,0 Fótagerð: 8,5 Öflugar sinar Þurrir fætur Réttleiki: 8,0 Hófar: 8,5 Efnisþykkir Kúptir hófar Prúðleiki: 7,5 |
Tölt: 8,0 Taktgott Mjúkt Brokk: 8,0 Skrefmikið Skeið: 8,5 Takthreint Mikil fótahreyfing Stökk: 8,5 Ferðmikið Takthreint Vilji og geðslag: 8,5 Reiðvilji Þjálni Fegurð í reið: 8,5 Góður höfuðb. Fet: 8,0 Taktgott Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,0 |
Hér fyrir neðan eru hestar sem ekki eru lengur í okkar eigu en við höfum átt og/eða notað.
Here below there are stallions which we no longer have but at some time we have either had or used.