Völsungur á góðri stund í garðinum

Leita

 Á þessari síðu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem eru á Árbakka.  Neðst eru svo hestar sem hafa verið í okkar eigu en sá listi er þó engan veginn tæmandi.

On this page we have a list of the stallions in Árbakki.  Down below some of the horses we have had before, but not nearly all of them. 

 

 Hér fyrir neðan eru hestar sem ekki eru lengur í okkar eigu en við höfum átt og/eða notað.

Here below there are stallions which we no longer have but at some time we have either had or used.

| Eldri stóðhestar

Hnokki frá Fellskoti - Aðaleinkunn 8,52

Hann hlaut þriðja sætið í flokki fimm vetra stóðhesta á Landsmótinu 2008 með 8,52 í aðaleinkunn.  Árið áður var hann hæst dæmdi fjögurra vetra hestur ársins í heiminum.

Hnokki er undan Hrynjanda frá Hrepphólum sem er undan Stíganda frá Sauðárkróki og Von frá Hrepphólum og móðirin er gæðingshryssan Hnota frá Fellskoti undan Ófeigi frá Flugumýri og Moldu frá Viðvík.

Hnokki er frábær gæðingur, hreingengur og hágengur, spriklar af stað á vinkilhágengu tölti beint út úr hesthúsi.  Gangskilin frábær.  Svo má ekki gleyma glæsilegri byggingunni, hann er með 9 fyrir háls og herðar og nýtir hann líka vel í reið, fær 9 fyrir fegurð í reið.

Folöldin undan Hnokka eru háfætt og hálslöng og fara á stórstígu brokki og sýna alla jafna gang.  Við erum sannfærð um að Hnokki á eftir að láta að sér kveða í ræktuninni.

Hnokka eigum við ásamt Dananum Mads Jörgensen sem einnig keypti Örn frá Efri-Gegnishólum og Gelli frá Árbakka.

Mál (cm):

142   132   138   63   140   36   46   40   6,3   29,5   18,5  

Hófa mál:

V.fr. 9,4   V.a. 8,8  

Aðaleinkunn: 8,52

Sköpulag: 8,42

Kostir: 8,58


Höfuð: 8,5
   Svipgott   Vel opin augu  

Háls/herðar/bógar: 9,0
   Langur   Mjúkur   Skásettir bógar   Háar herðar  

Bak og lend: 9,0
   Mjúkt bak   Breitt bak   Vöðvafyllt bak   Löng lend  

Samræmi: 9,0
   Hlutfallarétt   Léttbyggt   Fótahátt   Sívalvaxið  

Fótagerð: 7,5

Réttleiki: 8,0

Hófar: 7,5
   Lágir hælar  

Prúðleiki: 8,5

Tölt: 9,0
   Rúmt   Há fótlyfta  

Brokk: 9,0
   Rúmt   Öruggt  

Skeið: 7,5
   Óöruggt  

Stökk: 8,0

Vilji og geðslag: 8,5
   Ásækni   Vakandi  

Fegurð í reið: 9,0
   Góður höfuðb.   Mikill fótaburður  

Fet: 8,5
   Taktgott   Skrefmikið  

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,5

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is