Hinrik, eða Hinni eins og hann er allajafna kallaður, er atvinnuknapi og hestaútflytjandi, hefur gæðingadómarapróf og alþjóðlegt íþróttadómarapróf. Hann hefur keppt í meira en 25 ár á Íslandi sem og erlendis og náð glæsilegum árangri.
Hann er fæddur inn í hestafjölskyldu og hefur stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini. Faðir Hinriks er tannlæknirinn og fyrrverandi formaður Fáks, Bragi Ásgeirsson og móðir hans hárgreiðslumeistarinn og framhaldsskólakennarinn Edda Hinriksdóttir. Móðurbróðir hans er Ragnar Hinriksson, hinn landsþekkti knapi og hestamaður, dóttir hans Edda Rún er sambýliskona Sigurðar V. Matthíassonar og systir hennar Jóna Margrét handboltakona er með Viðari Ingólfssyni. Og eins og þetta væri ekki nóg þá er önnur systir hans, Guðrún Edda snyrtifræðingur og verslunarstjóri í sambúð með Sveini Ragnarssyni og hin, Jóna Dís grunnskólakennari er gift Dr. Helga Sigurðssyni dýralækni. Svo umræðuefnin skortir ekki í fjölskylduboðum.
Afi Hinriks var Hinrik Ragnarsson sem var þekktur hestamaður hér í Reykjavík. Hann átti hestinn Asa frá Þorgautsstöðum sem Asavöllurinn er nefndur eftir. Hann var annálað snyrtimenni og lagði mikið upp úr því að hross hans væru snyrt og hann sjálfur vel til hafður í hesthúsunum, löngu áður en slíkt varð sjálfsagt mál.
Lengst af hefur Hinni búið í Reykjavík og er fæddur þar, þó bjó hann í Borgarnesi í nokkur ár en flutti til Reykjavíkur aftur 13 ára gamall og hefur því lengst af verið í Fáki.
Hinni hefur unnið fleiri titla í keppni en hann hefur tölu á. Í myndakaflanum má rekja þessa sögu nokkuð en svo nokkrir séu nefndir þá hefur hann orðið Íslandsmeistari í unglingaflokkum, unnið gæðingakeppni Fáks tvisvar sinnum, orðið Reykjavíkurmeistari, Íslandsmeistari í fullorðinsflokkum, hann er margfaldur Norðurlandameistari og þrefaldur Heimsmeistari. Svo af ýmsu er að taka. Hinni ríður mikið út, fer um og skoðar hesta og selur þá oft jafnóðum. Hann hefur ekki tekið mikið í tamningu fyrir aðra svo oftast er hann að keppa á hestum í eigu þeirra hjóna.
Og ef hann er ekki á hestbaki má athuga hvort góður fótbolti sé í gangi, þá gæti hann verið að fylgjast með honum, nú eða þá að hann hefur skroppið að þrífa bílinn sinn en bílar eru annað áhugamál hans.