Árbakki hestar ehf er fyrirtæki sem við eigum til helminga á móti þeim sómahjónum Jóni Björnssyni og Sigrúnu Björk Jakobsdóttur.  Það á og heldur utan um rekstur á Árbakka.

Gott fyrirtæki byggir á góðu starfsfólki.  Við höfum átt því láni að fagna að hafa alltaf haft gott fólk í vinnu hjá okkur.  Flest er þetta þekkt fólk í hestamennskunni  í dag og við erum stolt af þessum lista og finnst við alltaf eiga eitthvað í þeim öllum.

Hestvit er fjölskyldufyrirtæki sem stundar viðskipti með og í kringum hross.  Hér eru helstu upplýsingar um það.

Hestvit ehf, Árbakka, 851 Hella, sími og fax: +354 587 1748, hestvit@hestvit.is, farsímar: +354 897 1744  og +354 897 1748


Já, það er ekki seinna að vænna að kynna það á þessari síðu að við erum flutt!  Leiðarlýsingu er hér einnig að finna.

Hinrik og Hulda þurfa auðvitað hesthús undir rekstur sinn.  Það er staðsett á félagssvæði Fáks, nánar tiltekið í Faxabóli, rétt við félagsheimili Fáks og heitir gatan Asaból númer 6.  Þar eiga þau hlut í stóru hesthúsi og hafa endunýjað það allt í hólf og gólf.  Framhliðar stíanna eru steyptar og stíurnar eru safnstíur þar sem vel fer um hestana og einungs þarf að moka á nokkurra vikna fresti.   Haustið 2005 eru þó breytingar á döfinni.


Sumarið 2005 var fyrsta tímabilið okkar á Árbakka.  þar var duglega tekið til hendinni og því þurfti auðvitað margar hendur, eins og gefur að skilja.



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is